Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/38957
Á Íslandi lagðist notkun rúnaleturs að mestu af á 17. öld. En hvað ef svo hefði ekki verið? Í verkinu er spáð í mögulega þróun íslenska rúnaletursins, að því gefnu að notkun þess hefði haldið áfram til okkar daga. Formfræði rúnanna er skoðuð og mótuð áfram. Ýmsar vangaveltur eru lagðar fram, til dæmis hvaða áhrif alþjóðavæðing og tækniframfarir síðustu alda kynnu að hafa haft á þróun rúnaletursins. Rúnirnar eru settar fram í formi neon-skilta til að undirstrika þetta nýja samhengi rúnanna í dag.
Efsaga íslenska rúnaletursins er útskriftarverkefni til BA-gráðu í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Í þessari greinargerð verður fjallað um hugmyndavinnu, ferli, framsetningu og niðurstöður verkefnisins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
skemman_hönnunargreining.pdf | 2,13 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |