Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/39020
Þrátt fyrir að ilmvatn sé ævaforn og algeng munaðarvara hafa fæstir skilning á því hvernig ilmur er settur saman. Ilmur er dulúðlegur og ljóðrænn í eðli sínu og verkinu er ætlað að miðla hinni leyndardómsfullu smíð sem ilmurinn er. Með tilraunakenndum ljósmyndunaraðferðum er leitast við að fanga innihaldið, sem ekki sést með berum augum – líkt og ilmurinn sjálfur. Aðferðirnar eru annars vegar hitaljósmyndun og hins vegar Kirlian-ljósmyndun, þar sem notast er við háspennuriðstraum. Myndunum er miðlað í bók samhliða stökum ilmefnum, sem mynda nýjan ilm, blönduðum sérstaklega fyrir verkið. Útlit bókarinnar byggist á þeim skrautlausa og skilmerkilega stíl sem einkennir vísindalegar upplýsingar, sem og andstæðu hans, óhlutbundinni túlkun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Arnar_verkefniBA_2021.pdf | 8,37 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |