is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/39040

Titill: 
  • Rafiðnnám á Íslandi : áhrif vegalengdar í rafiðnnám á námsval og framboð faglærðs rafiðnaðarfólks
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Aðgengi að rafiðnnámi á Íslandi er afar mismunandi eftir búsetu og vegalengdar í námið. Erlendar rannsóknir, þar sem möguleg tengsl milli vegalengdar og aðsóknar í nám voru könnuð, hafa sýnt að vegalengd í skóla eða tiltekið nám hefur greinileg áhrif á aðsókn.
    Í þessari rannsókn er lesanda gerð skil á rafiðnaðinum og rafiðnnámi á Íslandi, ásamt mikilvægi fagmenntunar í greininni. Rannsakað var hvort vegalengd í rafiðnnám á Íslandi væri þáttur sem hefði áhrif á aðsókn einstaklinga í rafiðnnám, eftir mismunandi stöðum á landinu. Að sama skapi var rannsakað hvort vegalengd í rafiðnnám á Íslandi hefði áhrif á framboð af fagmenntuðum rafiðnaðarmönnum og framboð á rafiðnaðarmönnum í heild, fagmenntaðra eða ekki. Jafnframt var skoðað hvort vegalengdin hefði áhrif á hlutfall fagmenntaðra rafiðnaðarmanna af heildarfjölda rafiðnaðarmanna í greininni á mismunandi stöðum á landinu.
    Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að vegalengd í rafiðnnám sé þáttur sem hefur áhrif á aðsókn í námið, fjölda þeirra sem starfa í greininni, bæði fagmenntaða og í heild. Niðurstöður gefa einnig vísbendingar um að aðgengi að rafiðnnámi sé mismunandi eftir stöðum á landinu og að það hafi áhrif á stöðu rafiðnaðar á mismunandi stöðum á landinu.

  • Útdráttur er á ensku

    Access to vocational education in electrical technology in Iceland is very different depending on where an individual is located, due to different distances to schools that provide the education. Most studies from Europe and America, where the possible influence between distance to an education and attendance to an education has been studied, have shown that distance to a school or a specific education has an influence on attendance to that school or that specific education. In this study the reader is introduced to the electrical industry and vocational education in electrical technology in Iceland. The possible connection between the distance to the nearest vocational education in electrical technology and attendance to vocational education in electrical technology from different locations in Iceland was studied. The possible connection between the distance to the nearest vocational education in electrical technology and the supply of electrical workers who have completed the vocational education, the supply of electrical workers overall, undependant of completion of the vocational education, and the ratio of electrical workers who have completed the vocational education, were also studied. The results indicate that a distance to an electrical vocational education is an influential factor to attendance to vocational education in electrical technology from different locations in Iceland, to the number of electrical workers that have completed vocational education in electrical technology in different location in Iceland and to the number of electrical workers overall in different locations in Iceland, undependant of completion of electrical vocational education.

Samþykkt: 
  • 14.6.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/39040


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
jb_lokaverk.pdf962,78 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna