Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/39113
Djarfur varalitur er ákveðin yfirlýsing þess sem ber hann. Það lítur glæsilega út, er aðlaðandi og áberandi að ganga um með varalit en á sama tíma ögrandi og þar af leiðandi valdeflandi. Það er einmitt ástæðan fyrir því af hverju varaliturinn hefur spilað mikilvægt hlutverk í réttindabaráttum kvenna. Varaliturinn er óneitanlega kvenlegt og valdeflandi fyrirbæri en hefur einnig verið notaður gegn konum svo öldum skiptir. Þetta skreyti hefur haft mikil áhrif á viðhorf kvenna í jafnréttistbaráttum en hefur einnig verið mikið togstreitumál. Varaliturinn hefur staðið fyrir baráttutákni, staðalímyndum, kúgun og valdi svo fátt sé nefnt. Í þessari ritgerð verður saga varalitarins lauslega rakin og hann settur í samhengi við baráttur kvenna frá súfragettum til dagsins í dag. Fjallað verður um varalitinn út frá samfélagslegu hlutverki og af hverju hann hefur verið miðpunktur togstreitunnar í réttindabaráttum kvenna. Farið verður yfir kröfur samfélagsins um útlit kvenna og hvort varaliturinn sé í raun valdeflandi eða í raun falið tól kúgunar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
elinarna_ritgerdBA_2020.pdf | 1.66 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |