Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/39138
Fléttur eða skófir eru algeng fyrirbæri í náttúrunni sem verða til vegna sambýlis svepps og ljóstillífandi lífveru. Samspil þessara lífvera getur verið margs konar og eru fléttur því fjölbreytilegar í útliti. Fléttur geta tekið á sig hvers konar lögun og verið í allskyns litum – og eins hafa þær ólíka áferð eftir tegundum. Hér eru ólíkar fléttur rannsakaðar í smásjá og ljósmyndaðar. Áhugi minn á sérstöku útliti þeirra þróaðist svo yfir í tilraunir til þess að prenta þær út með mismunandi prentaðferðum til þess að ná fram mismunandi áferð. Flokkun fléttana í hrúðurkenndar, blaðkenndar og runnkenndar fléttur réði hvaða prentaðferð varð fyrir valinu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hönnunargeining_prent.pdf | 9,9 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |