Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/39169
Í þessari ritgerð er samband tónlistarmannsins Pete Doherty og fatahönnuðarins Hedi Slimane á árunum 2003 til 2007 rannsakað. Pete, sem áður var þekktastur fyrir störf sín í tónlist, öðlaðist á þessum árum nýtt hlutverk sem tískutákn þökk sé ýmsum áhrifaþáttum. Rannsókn þessarar ritgerðar felst í greiningu á þessum þáttum og að lokum er gert upp á milli vægi þeirra. Í poppmenningarheimi nútímans er sanngildi listamanna og hönnuða dýrmætur eiginleiki – í heimi þar sem auðvelt er að falsa sína opinberu ímynd. Skoðað verður hvernig sanngildi vegur inn í mat á niðurstöðum rannsóknarinnar.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
gudmundurmagnusson_ritgerdBA_2020.pdf | 24.58 MB | Open | Complete Text | View/Open |