Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/3916
Ritsmíð þessi hefur að geyma stuttlega könnun á þeirri lögskýringaraðferð sem umboðsmaður Alþingis beitir við skýringar sínar á 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Höfundur hennar hefur leitast við að gera í senn knappa en glögga grein fyrir ýmsum atriðum og hugtökum úr lögskýringarfræðum, samhliða úttekt á aðferðafræði umboðsmanns. Í fyrstu köflum ritgerðarinnar verður stiklað á stóru um hlutverk og eðli þessa embættis, auk þess sem rakin verða fáein atriði er tengjast lögskýringum og túlkun á stjórnarskrárákvæðum. Í 5. kafla verður skýrt frá meginefni ritgerðarinnar. Undir lokin fylgja svo tveir litlir kaflar, hinn fyrri með samanburði á skýringum umboðsmanns við túlkun Hæstaréttar á 1. mgr. 76. gr. stjskr., hinn síðari með samantekt á niðurstöðum ritgerðarinnar.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Sverrir_Norland_fixed.pdf | 279,15 kB | Open | Heildartexti | View/Open |