is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/39170

Titill: 
  • Þróun heimilisofbeldismála á Íslandi : heimilisofbeldi á tímum COVID-19
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í bakkalár ritgerð þessari í lögreglu- og löggæslufræði við Háskólann á Akureyri leitast höfundar við að varpa ljósi á þróun málaflokksins heimilisofbeldi á Íslandi á milli áranna 2014 og 2020. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvaða áhrif heimsfaraldrar eins og COVID-19 hafa á málaflokkinn. Þar sem erlendar rannsóknir hafa leitt í ljós aukningu á heimilisofbeldi á tímum COVID-19 könnuðu höfundar hvort reynslan hérlendis væri sú sama. Höfundar notuðu eigindlega aðferðarfræði, tóku hálfstöðluð viðtöl við níu lögreglumenn hérlendis með sérþekkingu á málaflokknum. Viðmælendur voru spurðir um upplifun þeirra af málaflokknum og breytingarnar sem hafa orðið á milli áranna 2015 og 2020. Rýnt var í aðdraganda að breyttu verklagi hérlendis í málaflokknum sem hófst með breyttum verklagsreglum í janúar 2015. Höfunda langaði einnig að draga fram hvort breytingar hafi orðið á heimilisofbeldismálum á tímum COVID-19; það er málafjölda, eiginleika þeirra og afgreiðslu. Almennt töldu viðmælendur ekki hafa orðið aukningu í málaflokknum heimilisofbeldi en vegna COVID-19 hafi orðið afturför í eftirfylgni mála. Þegar rýnt var í tölfræðigögn mátti sjá stigvaxandi aukningu á skráningu mála hjá lögreglu í málaflokknum á milli áranna 2015 og 2020. Aukningin var að meðaltali 3,8% á ári á milli áranna 2015 og 2019 en á milli áranna 2019 og 2020 var aukningin 13,2%, eða 9,4% hærri en búast mátti við.
    Lykilorð: Heimilisofbeldi, lögreglan, COVID-19

  • Útdráttur er á ensku

    In this Bachelor thesis in Police Science from The University of Akureyri the authors wanted to see the development in the field of domestic violence in Iceland between the years 2014 and 2020. Special emphasis was put on what effect, if any, a pandemic like COVID-19 has on the field. As foreign researches have shown an increase in domestic violence during COVID-19 the authors studied if law enforcement in Iceland had the same experience. The authors used a quantitative research approaches while interviewing nine Icelandic police officers with special knowledge in the field. The interviewees were asked of their experience as well as the changes in the field between the years 2015 and 2020. The authors also viewed the eve of changes in procedures in the field in January 2015. Finally, the authors wanted to shed a light on how, and if, changes in the field domestic violence in time of COVID-19; number of cases, severity and proses. Generally the interviewees did not think there was an increase in the field domestic violence, but because of COVID-19 there has been regression in following up cases. The data from Police in Iceland, shows incremental increase of registered cases in the field between the years 2015 and 2020. The increase was 3.8% per year on average between the years 2015 and 2019 but between the years 2019 and 2020 the increase was 13.2% or, 9.4% higher than average.
    Keywords: Domestic Violence, Police, COVID-19

Samþykkt: 
  • 14.6.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/39170


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Þróun heimilisofbeldismála á Íslandi - BA ritgerð .pdf607.5 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna