Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3921
Þessi ritgerð fjallar um fyrningu kröfuréttinda. Með henni mun ég leitast við að útskýra upphaf fyrningarfrests, það er að segja tímapunktinn þegar fyrningarfestur byrjar að líða. Sett hafa verið ný fyrningarlög, lög um fyrningu kröfuréttinda nr. 150/2007 (hér eftir nefnd nýju fyrningarlögin). Ég skoða breytingarnar sem hafa verið gerðar frá eldri lögum á upphafi fyrningarfrests og hversu miklar þær breytingar eru.
Ég byrja á því að fjalla almennt um fyrningu og aðdraganda fyrningarlaganna. Þar á eftir mun ég fjalla um gildissvið nýju laganna. Að því loknu kemur að upphafi fyrningar, bæði reglum sem enn eru í gildi og þeim sem felldar hafa verið úr gildi með nýjum lögum. Að lokum mun ég svara þeirri spurningu minni hvort miklar breytingar hafi verið gerðar á fyrningarlögunum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sigrun_halla_fixed.pdf | 317.08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |