Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/39228
Ferðinni var heitið út í Viðey á köldum vetrardegi. Lífræn form tóku á móti okkur ásamt ýmsum lífverum jarðarinnar sem höfðu fengið að þrífast á eyjunni í gegnum tíðina. Loftið var hreint og tært.
Hvernig hafði eyjan verið hönnuð – út frá inngripi mannsins eða út frá inngripi náttúrunnar?
Hljóð og taktur hversdagsleikans birtist í annars konar mynd en nokkrum stundum áður líkt og önnur saga um lífið. Margvíslegar andstæður, eins og þungu elementin sem búa í grjótinu og léttu elementin sem búa í vatninu. Raunveruleiki er búinn til, uppspuni eins og trúarbrögð, peningar, menning, tungumál og byggingar. Þetta verkefni er uppspuni, saga sem gerist í Viðey.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
KOLBRUNSARA_HÖNNUNARGREINING_25.5.21.pdf | 53.02 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |