Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/39308
Í upphafi rannsóknarferlisins missti ég ömmu mína sem varð til þess að ég var í tveimur ferlum í einu. Skapandi ferli og hinsvegar sorgarferli. Á eitthvern máta fóru ferlin að blandast saman og rannsóknin fór að beinast að sorgarklæðum. Frá persónulegum pælingum um sorgarklæðnað lá leiðin að Victoriu tímanum, klæðnaði innan kirkjunnar og gömlum fjölskyldumyndum.
Gamlar myndir af ömmu leiddu hugann að blúndu og hekl textíl í formi gamalla gardína og dúka. Það er eitthvern vegin sama kyrrð og ró og myndast í kirkjunni sem fylgir þessum textíl. Þessi týpíski ömmu og afa blúndudúkur varð að verndarhjúp. Línan er eitthversskonar túlkun á sorgarferli fyrri tíma og mínu eigin sorgarferli. Sorgarhefðir liðna tíma en líka hefðir fjölskyldunnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Óuppgerð sorg.pdf | 26,5 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |