Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/39363
Ágrip
Heilbrigðisstofnanir vinna markvisst með hugtakið stöðugar umbætur. Með því er ætlað greina innviði heilbrigðisstofnana, auka skilvirkni og koma í veg fyrir sóun með það að markmiði að spara fjármagn og bæta þjónustu sjúklinga. Tilgangur verkefnisins er að rannsaka hver reynsla heilbrigðisstarfsmanna er af innleiðingu á nýju verklagi í tengslum við stöðugar umbætur og að viðhalda nýju verklagi og kanna sérstaklega hvert er vægi samskipta og menningar í því ferli. Gerð var eigindleg rannsókn og gagna aflað með viðtölum þar sem leitast var við að kalla fram upplifun og viðhorf viðmælanda. Niðurstöður leiddu í ljós að viðmælendur hafa upplifað að ekki er nógu vel staðið að innleiðingu nýrra verkferla. Vísbendingar koma fram um að starfsmenn eru ekki hafðir með í ráðum þegar undirbúningsferlið er í gangi og þykir þeim pottur víða brotinn í innleiðingarferlinu. Niðurstöður eru skoðaðar í ljósi stöðu þekkingar um stöðugar umbætur, vinnustaðamenningu, forystu og teymi. Höfundur metur svo að áhugavert væri að skoða rannsóknarefnið frekar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Stöðugar umbætur - Anna María Sighvatsdóttir.pdf | 1.23 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |