is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/39533

Titill: 
  • „Það litast svoldið af því hvað er til í bókakompunni“ : bókmenntaval á unglingastigi
  • Titill er á ensku ”It really is affected by what is available in the book storage room” : literature selection at the adolescent level
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna hvaða þættir hafa áhrif á bókmenntaval íslenskukennara á unglingastigi og hvers vegna ákveðnar bækur eru kenndar en aðrar ekki. Grunnskólar hafa töluvert frelsi þegar kemur að vali á bókmenntum. Rannsóknir á bókmenntakennslu hérlendis benda hins vegar til þess að bókmenntaval grunnskóla sé keimlíkt hér á landi.
    Til að varpa ljósi á viðfangsefnið voru tekin viðtöl við fimm íslenskukennara á unglingastigi í þremur grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið var að reyna að komast að því á hverju bókmenntaval kennaranna byggist og af hverju þeir kenna ákveðnar bækur.
    Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að nokkrir þættir stýri bókmenntavali kennara og því hvers vegna ákveðnar bækur eru kenndar en aðrar ekki. Aðgengi að bókmenntum stýrir vali kennara og er bókmenntaval oftar en ekki bundið við það sem er til inni í bókakompunni. Auk þess getur staða skólabókasafna skipt sköpum fyrir kennara og ber þar helst að nefna úrval af fjölbreyttum bókum. Jafnframt benda niðurstöður til þess að hefð hafi áhrif á val á bókmenntum og algengara sé að bækur sem kenndar hafa verið áður verði fyrir valinu. Kennarar reyndu að velja bækur sem höfðuðu til nemenda og þeirra reynsluheims. Að auki vörpuðu niðurstöður ljósi á að kennarar byggja val sitt á því að til sé einhvers konar stuðningsefni, kennsluleiðbeiningar og verkefnabanki með bókunum. Kennarar rannsóknarinnar voru yfirleitt í samstarfi þegar kemur að bókmenntavali og gefa niðurstöður til kynna að það geti haft eitthvað að segja í vali á bókmenntum.

  • Útdráttur er á ensku

    The subject of this study is to investigate what factors influence the literature choice of Icelandic teachers at the adolescent level and why certain books are taught while others are not. Primary schools have a certain freedom when it comes to choosing literature. However, research on literature teaching in Iceland has indicated that the choice of literature is similar between primary schools in this country.
    In order to shed light on the subject, qualitative interviews were conducted with five Icelandic teachers at the adolescent level in three primary schools in the capital area. The aim was to try to find out what the basis is for teacher’s choice of literature and why they teach certain books.
    The results of the study indicated that several factors control the literature selection of teachers and in addition why certain books are taught while others are not. Teachers access to literature controls the choice of teachers and the choice of literature is more often than not limited to what is in the book storage room. In addition, the status of school libraries can be crucial for teachers, most notably a selection of diverse books. Furthermore the results indicated that tradition influences the choice of literature and that it is more common for previously taught books to be chosen. Teachers usually chose books that appealed to students and their world of experience. In addition, the results shed light on the fact that teachers base their choice on the existence of some kind of support material, teaching instructions and a project bank with the books. The teachers of the study were usually collaborative when it comes to choosing literature and the results indicate that it can have something to say in the choice of literature.

Samþykkt: 
  • 28.6.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/39533


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
„Það litast svoldið af því hvað er til í bókakompunni“ - Bókmenntaval á unglingastigi.pdf651.97 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Skemman yfirlýsing 2021 Hjalti Freyr Magnússon.pdf174.49 kBLokaðurYfirlýsingPDF