is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/39587

Titill: 
  • „Ef við fáum ekki þessa fræðslu og ráðleggingar í skólanum, hvar eigum við þá að fá þær?“ : staða kynfræðslu í íslenskum grunnskólum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmiðið með þessari ritgerð er að rannsaka stöðu kynfræðslu í íslenskum grunnskólum. Athugað verður hvað rannsóknir sýna að sé mikilvægt þegar kemur að kynfræðslu í grunnskólum og hvernig staðið er að slíkri fræðslu í íslensku skólakerfi. Á undanförnum árum hafa sjálfstæðir kynfræðarar orðið meira áberandi þar sem fagaðilar, félagasamtök, aktívistar og fleiri hafa svarað kalli um aukna fræðslu og séð um að fræða ungmenni um hin ýmsu málefni sem varða kynfræðslu og kynjafræði. Í ljósi þessa verður einnig athugað hvað einkennir þá fræðslu sem sett hefur verið saman af sjálfstæðum kynfræðurum sem hafa látið til sín taka á undanförnum árum. Niðurstöður leiða í ljós að aðalnámskrár grunn- og framhaldsskóla á Íslandi innihalda ekki nákvæmar upplýsingar um hvað kynfræðsla feli í sér og virðist það vera undir kennurunum komið hversu ítarlega þeir fræða nemendur sína um kynlíf. Færa má rök fyrir því að kynfræðsla ætti að gegna stærra hlutverki en hún virðist gera í íslenskum grunnskólum í dag. Þrátt fyrir að vera ekki skilgreind sem skyldunámsgrein í aðalnámskrá grunnskólanna er hún samt sem áður einn af þeim mikilvægu þáttum sem koma til með að gagnast einstaklingum þegar kemur að andlegum og líkamlegum þroska á unglingsárum.

Samþykkt: 
  • 30.6.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/39587


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ef við fáum ekki þessa fræðslu og ráðleggingar í skólanum, hvar eigum við þá að fá þær.pdf514,32 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing.jpg221,43 kBLokaðurYfirlýsingJPG