en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/39594

Title: 
  • Title is in Icelandic ,,Það var magnað að sjá breytinguna á þeim'' : niðurstöður úr sértæku hópastarfi í félagsfærni
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Góð og jákvæð félagsfærni er mikilvægt verkfæri fyrir börn og unglinga sem getur reynst þeim dýrmætt veganesti í lífinu. En það er ekki sjálfgefið að vera með góða félagsfærni og geta einstaklingar alltaf bætt sig. Það er hægt að setja þetta í svipaða merkingu og með líkamann, líkaminn þarfnast reglulegrar hreyfingar til þess að haldast heilbrigður og andlega hliðin þarfnast þess sama. Þar af leiðandi er mikilvægt fyrir börn og unglinga að æfa sig í félagsfærni og félagslegum aðstæðum. Þessi ritgerð er lokaverkefni til BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á sértækt hópastarf félagsmiðstöðva ásamt mikilvægi samstarfs grunnskóla og félagsmiðstöðva. Sértækt hópastarf var sett fram sem örnámskeið í félagsfærni þar sem áhersla var lögð á einstaklingsvinnu en jafnframt verið að efla hópinn. Notast var við rannsóknarspurninguna: Hvernig virkar að nota sértækt hópastarf til að efla félagsfærni unglinga í Mosfellsbæ? Með undirspurningunni: Er samstarf skóla og félagsmiðstöðva mikilvægt þegar kemur að sértæku hópastarfi? Jákvæðar niðurstöður fengust úr viðtölum sem tekin voru við deildarstjóra, kennara og stuðningsfulltrúa en ekki er þó hægt að alhæfa um niðurstöðurnar.

Accepted: 
  • Jun 30, 2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/39594


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BA LOKAVERKEFNI Andrea Ósk.pdf379.55 kBOpenComplete TextPDFView/Open
yfirlysing_lokaverkefnis_Andrea Ósk.pdf135.58 kBLockedDeclaration of AccessPDF