Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/39626
Ég er besti vinur minn: Samspil leiklistar og lífsleikni í skólastarfi er lokaverkefni til B.Ed.-prófs í grunnskólakennarafræðum við Háskóla Íslands. Verkefnið fjallar, líkt og titill gefur til kynna, um samspil leiklistar og lífsleikni í skólastarfi. Fjallað er um menntagildi þessara greina, en bæði er fjallað um leiklist sem listgrein og sem kennsluaðferð. Sérstök áhersla er lögð á notkun aðferða leiklistar í lífsleiknikennslu. Verkefninu fylgir heildstætt ferli leiklistar sem byggt er á hugmyndum Ásu Helgu Ragnarsdóttur og Rannveigar Bjarkar Þorkelsdóttur (2012). Ferlið er unnið út frá sögunni Ég er besti vinur minn, en hún er fumsamin af höfundi þessa verkefnis og fjallar, meðal annars, um málefni á borð við sjálfsmynd, fordóma og öráreiti. Ferlið er hannað fyrir elsta stig grunnskóla og er það unnið með því markmiði að hvaða kennari sem er geti nýtt sér það við kennslu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.Ed. - Ég er besti vinur minn.pdf | 361.27 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16.pdf | 164.07 kB | Lokaður | Yfirlýsing |