en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/39641

Title: 
  • Title is in Icelandic Félagsmiðstöð án aðgreiningar : félagslegur stuðningur fyrir unglinga með fatlanir
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Verkefnið skiptist í tvo hluta: annars vegar greinargerð sem er fræðilegur bakgrunnur sem sýnir fram á hvers vegna félagsmiðstöðvar ættu að vera án aðgreiningar. Hins vegar tillögu af því hvernig hægt er að setja af stað starf án aðgreiningar í félagsmiðstöðvum. Í greinargerðinni er fjallað um mikilvægi þess að félagsmiðstöðvar bjóði upp á starf án aðgreiningar, líkt og skólar landsins eru að gera. Hingað til hefur það ekki verið raunin og til þess að það geti orðið að veruleika þarf að eiga sér stað mikil vinna og er fjallað um þá vinnu í tillögunni. Greinargerðin skiptist í nokkra kafla sem varpa ljósi á stöðu fatlaðra barna og unglinga í samfélaginu í dag í tengslum við félagslegri þátttöku þeirra til tómstundaiðkunnar. Fjallað er um fötlun í fræðilegu samhengi, rétt fatlaðra einstaklinga til náms og þátttöku jafnt við aðra, tómstundir og ávinning þeirra, félagslega þátttöku einstaklinga með fatlanir ásamt æskulýðsstarfi og meginhlutverki þess. Einnig var farið af stað með vettvangsrannsókn sem átti sér stað frá ágúst 2020 til desember sama árs.
    Tillagan að félagsmiðstöð án aðgreiningar er sett upp af þeirri vinnu og þeim afrakstri sem átti sér stað á vettvangi. Má þar nefna þá þætti sem jákvæðar afleiðingar höfðu í för með sér og eru því mikilvægir í uppbyggingu sambærilegs starfs. Félagsmiðstöð án aðgreiningar leggur upp með þátttöku allra einstaklinga burt séð frá líkamlegu-og/eða andlegu atgervi þeirra og býður upp á viðeigandi stuðning fyrir þá sem þurfa á honum að halda. Ásamt því er lagt upp með að útrýma fordómum í samfélaginu í garð fatlaðs fólks.

Accepted: 
  • Aug 4, 2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/39641


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Félagsmiðstöð án aðgreiningar - BA-verkefni.pdf537.45 kBOpenReportPDFView/Open
Afurðin.pdf326.97 kBLocked Until...2032/05/31Supplementary DocumentsPDF
Yfirlýsing - Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir.pdf202.78 kBLockedDeclaration of AccessPDF