en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/39712

Title: 
  • Title is in Icelandic „Ég hef ekki hugmynd um hvað unglingurinn minn er að gera í félagsmiðstöðinni“ : upplifun foreldra á félagsmiðstöðvastarfi í Kópavogi
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Verkefni þetta er lokaverkefni til BA-gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Verkefnið er rannsóknarskýrsla sem byggir á eigindlegri rannsókn þar sem leitast var við að svara spurningunni: Hver er upplifun foreldra á félagsmiðstöðvastarfi í Kópavogi? Tekin voru þrjú rýnihópaviðtöl við fjórtán foreldra sem öll eiga það sameiginlegt að eiga ungling/a sem mæta oft í félagsmiðstöð. Kópavogur skiptist í þrjú póstnúmer og eru tvær til fjórar félagsmiðstöðvar í hverju póstnúmeri. Viðtölin voru tekin í þremur félagsmiðstöðvum, eitt í hverju póstnúmeri, þ.e.a.s. eitt viðtal í 200, annað í 201 og það þriðja í 203 Kópavogi.
    Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós fimm meginþemu en þau eru jákvætt viðhorf foreldra, traust starfsfólk og öryggi, þekking foreldra, stuðningur foreldra og ávinningur unglinga. Foreldrar voru yfir heildina litið mjög ánægðir með félagsmiðstöðvastarfið og var viðhorf þeirra mjög jákvætt. Þekking foreldra á félagsmiðstöðvastarfinu var hins vegar fremur lítil og einkenndist helst af afþreyingargildi starfsins fremur en menntunar- og forvarnargildi þess. Einnig kom fram að foreldrar telja virka þátttöku unglinga í félagsmiðstöðvastarfinu efla þá félagslega og að stuðningur og hvatning foreldra sé mikilvæg í því samhengi. Niðurstöður þessarar rannsóknar geta nýst félagsmiðstöðvastarfinu og starfsfólki á þeim vettvangi hér á landi sem og veitt foreldrum betri innsýn inn í starfið.

Accepted: 
  • Aug 10, 2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/39712


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BA-Margrét-Nilsdóttir-og-Rebekka-Þurý-Pétursdóttir.pdf557,74 kBOpenComplete TextPDFView/Open
Yfirlýsing - Skemma. Margrét og Rebekka.pdf652,72 kBLockedDeclaration of AccessPDF