is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/39773

Titill: 
  • Spurt og svarað : kynfræðsluvefur fyrir unglinga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta lokaverkefni samanstendur af greinargerð og vefsíðu. Greinargerðin fjallar um mikilvægi kynfræðslu fyrir unglinga, stöðu hennar í grunnskólum landsins og það fræðsluefni sem í boði er. Til að stuðla að bættu kynheilbrigði unglinga verður kynfræðsla í skólum að hefjast snemma og beinast jafnt að líkamlegri, andlegri, félagslegri og tilfinningalegri vellíðan þeirra. Á tímum samfélagsmiðla og klámvæðingar verða unglingar því að hljóta viðeigandi fræðslu sem eflir færni þeirra til að takast á við hinar ýmsu félagslegu áskoranir. Ákall eftir öflugri kynfræðslu hefur verið áberandi í samfélaginu á undanförnum árum en í þessari greinargerð kemur í ljós að aðalnámskrá er óskýr og misjafnlega er staðið að kynfræðslu í skólum landsins. Mikið er til af gagnlegu fræðsluefni en margt mætti uppfæra í takt við þarfir unglinga nútímans. Vefsíðan Spurt og svarað er framlag höfundar um nýtt kynfræðsluefni sem unglingar geta nálgast á eigin forsendum. Um er að ræða öruggan vettvang fyrir þá til að leita svara við hinum margvíslegu spurningum sem kunna að vakna í tengslum við kynferði, kynlíf, sambönd, samskipti og fleira. Vefsíðan ætti að gagnast öllum unglingum jafnt sem foreldrum þeirra eða forsjáraðilum, kennurum og öðrum leiðbeinendum sem vinna að kynfræðslu.

Tengd vefslóð: 
Samþykkt: 
  • 25.8.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/39773


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greinargerð.pdf543,13 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Vefsíða.pdf626,77 kBOpinnFylgiskjölPDFSkoða/Opna
Skjáskot.pdf4,67 MBOpinnFylgiskjölPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing.pdf68,17 kBLokaðurYfirlýsingPDF