Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/39892
Rannsóknarritgerð þessi fjallar um ferskan íslenskan útfluttan þorsk og lax á frönskum markaði. Markmiðið með henni var að kanna reynslu og upplifun útflytjenda á útflutningi og sölu á fiskinum frá Íslandi, mögulegri sóun hans í virðiskeðjunni og viðhorf til þátta sem eru í brennidepli nú svo sem kolefnisfótspors, sjálfbærni, uppruna og gæða hráefnis. Rannsóknarspurningin var: Hver er reynsla íslenskra útflytjenda af sölu íslensks hvítfisks eða lax til Frakklands og mögulegri sóun hans í virðiskeðjunni? Rannsókninni var ætlað að safna upplýsingum um franskan markað og koma auga á tækifæri í verðmætaaukningu við núverandi markaðsaðstæður á sölu á ferskum íslenskum þorski og laxi.
Niðurstöðurnar sýna fram á að franskur markaður er mjög mikilvægur fyrir íslenskan útflutning á ferskum þorski og laxi en jafnframt mjög breytilegur markaður þar sem samkeppni er nokkuð harðari en víða annars staðar. Viðmælendur sjá vannýtt tækifæri við sölu á ferskum fiski í Frakklandi og telja ákveðið virðistap eiga sér stað við núverandi aðstæður sem koma megi í veg fyrir að einhverju leyti með betri innsýn í áhrifaþætti markaðarins, markvissri markaðssetningu og sölustarfi á franskri grundu.
Lykilorð: Þorskur, lax, ferskur fiskur, útflutningur, viðskipti, Ísland, Frakkland.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Islenskur_thorskur_og_lax_a_fronskum_markadi_Valgerdur.pdf | 1.09 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlysing_ValgerdurArnadottir.pdf | 11.94 MB | Lokaður | Yfirlýsing |