Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/40096
Í verkefni þessu er það tekið til skoðunar hvort sjómenn eigi rétt á skaðabótum útfrá dæmdum rétti útgerðar til skaðabóta sem kom til vegna þess að ríkið braut á rétti fyrirtækis er varðar úthlutun á makrílkvóta til skips í eigu þess. Ástæðan fyrir vali á þessu verkefni til BS- gráðu við Háskólann að Bifröst er sú umræða sem átt hefur sér stað meðal sjómanna um málið. Það er því tilgangur verksins að leiða í ljós hvort réttur til hlutar úr dæmdum bótarétti fyrirtækisins sé til staðar.
Niðurstaðan er í raun sú að réttur sjómanna til hlutar úr þessum dæmda bótarrétti sé ekki til staðar. Til greina komi hins vegar, það að til álita að sjómenn á makrílveiðiskipum eigi ámóta rétt til bóta og útgerðir frá ríkinu vegna þeirra ráðstafana sem ríkið viðhafði við úthlutun á veiðiheimildum í makríl á árunum 2011 til 2014. Þar sem fyrirtæki ber ábyrgð á launagreiðslu til áhafnar, verður áhöfn að beina kröfum sínum til fyrirtækis.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS verkefni 2021 LOKA - Örn Friðriksson.pdf | 363.45 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlysing_Orn_2021.pdf | 614.64 kB | Lokaður | Yfirlýsing |