Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/40184
Lokaverkefni þetta felst í hönnun og teikningu á tveggja hæða húsi með sambyggðri bílgeymslu á lóð sem er í Hraunprýði 3, 210 Garðabæ.
Fyrirskrifaðar kröfur eru að húsið skuli vera á tveimur hæðum með innbyggðri bílgeymslu. Grunnflötur skal ekki vera stærri en 150 m². Neðri hæð skal vera steypt og efri hæð byggð úr timbri. Frjálst val um gerð og staðsetningu einangrunar. Útveggir klæddir loftræstri klæðningu sem skal vera viðhaldslítil í a.m.k. 35 ár. Sama gildir um gólfefni og innréttingar. Við val á kerfi til upphitunar er gerð krafa til skjótrar svörunar til hækkunar og lækkunar á hita í rýmum, bæði með ofnakerfi og gólfhitakerfi en þó aðeins annað hvort kerfið í hvert rými Þá skulu
hljóðvistarkröfur tryggðar og gott inniloft tryggt.
Fyrsta hæð er staðsteypt, léttir gifsklæddir milliveggir og staðsteypt milliplata. Efri hæð er úr CLT krosslímdum timbureiningum. Allir útveggir eru einangraðir að utan.
Veðurkápa hússins er læst álklæðning. Loftskiptakerfi er í húsinu.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Hraunprýði 3 - Skýrsla.pdf | 6,59 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| Hraunprýði 3 - Teikningasett.pdf | 6,73 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |