Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/40189
Lokaverkefni í byggingariðnfræði sem fellst í hönnun á viðhaldslitlu einbýlishúsi þar sem kröfum verkkaupa er fylgt. Húsið er á tveimur hæðum með innbyggðri bílageymslu. Neðri hæð skal vera steypt og efri hæð úr timbri.
Lokaverkefnið felur í sér að hanna og teikna tveggja hæða hús með innbyggðri bílageymslu þar sem kröfur eru um að efri hæðin er úr léttum veggjum og neðri hæð úr steypu. Kvíslartunga 120 í Mosfellsbæ var notuð til hliðsjónar við gerð verkefnisins.
Teikningasettið inniheldur: Teikningaskrá, aðaluppdrætti, skráningartöflu, verkteikningar, sérteikningar, burðarvirkisuppdrætti og
lagnauppdrætti.
Skýrsla inniheldur eftirfarandi: Hönnunarferli, verklýsing, tilboðsskrá, kostnaðaráætlun, burðarþols-, varmataps- og lagnaúreikningar, þakrennu- og niðurfallsútreikningar, loftun þaks, auk umsóknar um byggingarleyfi, gátlisti byggingarfulltrúa og önnur fylgigögn.
Öll hönnun skuli fara eftir lögum um mannvirki nr. 160/2010 sem tóku gildi 1. janúar 2011, byggingarreglugerð nr. 112/2012 sem tók gildi í maí 2016.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Skýrsla_Kvíslartunga120.pdf | 9,79 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| Teikningasett_Kvíslartunga120.pdf | 7,65 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |