is Íslenska en English

Lokaverkefni (Diplóma bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > Dip Tæknifræðideild / Department of Applied Engineering >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/40207

Titill: 
  • Snæfríðargata 30 - 270 Mosfellsbær
Námsstig: 
  • Diplóma bakkalár
Útdráttur: 
  • Lokaverkefni í byggingaiðnfræði. Hönnun á einbýlishúsi með
    innbyggðri bílgeymslu. Neðri hæð er steypt og einangrað að utan. Efri hæð er úr CLT einingum og einangrað að utan. Þakið er valmaþak og loftað sperruþak, borið uppi með bitum. Húsið er klætt að utan með múrsteinsklæðningu.
    Þessi skýrsla er hluti af lokaverkefninu okkar þar sem við áttum að finna hús sem hefur nú þegar verið hannað og breyta því eftir kröfum kennara. Þær kröfur sem voru settar voru þær að húsið ætti að vera tveggja hæða með innbyggðum bílskúr og grunnflöturinn mátti ekki vera stærri en 150 m2 .
    Neðri hæðin átti að vera steypt og efri hæðin úr timbri. Þakform var valfrjálst en skal vera loftað sperruþak. Einnig voru settar þær kröfur að klæðning hússins ætti að endast í a.m.k 35 ár og hanna átti bæði ofna og gólfhitakerfi í húsið.
    Verkefnið hófst á einstaklingverkefni þar sem við völdum Snæfríðargötu 30 og við gerðum tillögu í sitthvoru lagi að breytingu á húsinu. Við völdum síðan tillöguna hans Magnúsar og hófst þá hönnunarvinnan.
    Teiknisett inniheldur: Uppdráttaskrá, aðaluppdrætti, verkteikningar, burðavirkisuppdrætti, lagnauppdrætti og skráningatöflu.
    Skýrslan inniheldur: verkáætlun, kostnaðaráætlun, verklýsing, tilboðsskrá, Burðarþols-varmataps og lagnaútreikning, þakrennur og niðurföll, loftun þaks, umsókn byggingarleyfs og gátlista.

Samþykkt: 
  • 4.1.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/40207


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Snæfríðargata 30 - Skýrsla.pdf4,39 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Snæfríðargata 30 - Teiknisett.pdf28,33 MBOpinnViðaukiPDFSkoða/Opna