Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/40271
Tilgangur þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hvernig nemendur í efsta bekk grunnskóla upplifa núverandi námsefni í fjármálalæsi og hvort óskir séu um umbætur í þeim efnum. Send var fyrirspurn á grunnskóla höfuðborgarsvæðisins og tóku tveir skólar þátt. Annar skólinn er Hagaskóli þar sem viðmælendur sóttu valnámskeið í fjármálakennslu á núverandi misseri og sá seinni Dalskóli þar sem fjármálakennsla er kennd sem hluti af stærðfræði í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla.
Gerð var eigindlega rannsókn þar sem bekkirnir sem heild tóku staðlað fjármálalæsispróf sniðið að þeirra aldurshópi og í framhaldi voru 12 einstaklingar úr sama rýnihóp teknir í ýtarlegri viðtöl þar sem leitað var eftir þeirra sýn og upplifun á fjármálum og núverandi kennsluefni. Í lokin voru skólarnir svo bornir saman til að athuga hvort ólík nálgun á kennsluaðferðum hafi árhif.
Niðurstöður viðtala gefa til kynna að ákveðin vitundarvakning er meðal ungmenna í fjármálum, að óskað sé eftir aukinni dýpt í námsefnið og/ eða að fjármálalæsi verði kennt sem sérgrein.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð_Lokaskil_Sigurbjörg Maren Jónsdóttir.pdf | 509.33 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefnis_2.pdf | 1.38 MB | Lokaður | Yfirlýsing |