Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/40369
Ofbeldi gegn konum í nánum samböndum er staðreynd og hefur verið viðurkennt sem meiriháttar heilbrigðisvandamál. Þegar þjóðir standa frammi fyrir samfélagslegum áföllum þá hafa rannsóknir sýnt að ofbeldi gegn konum geti allt að fjórfaldast. Hér er kannað hvort íslenska bankahrunið og COVID-19 hafi haft áhrif á tíðni ofbeldis gegn konum í nánum samböndum. Til að varpa ljósi á stöðu mála á Íslandi hafa komutölur til Kvennaathvarfsins og tilkynningar til lögreglu verið kannaðar, í þeim tilgangi að athuga hvort greina mætti breytileika í tíðni í kjölfar þessara atburða. Niðurstöður sýna að ofbeldistíðni gegn konum í nánum samböndum hefur farið stigvaxandi síðustu ár, hvort sem litið er til gagna lögreglu eða Kvennaathvarfsins. Erfitt er þó að álykta hvort þessir atburðir einir og sér höfðu áhrif á hækkandi tíðni ofbeldis gegn konum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
HeiðurSævars.BA.pdf | 1.16 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
LOKAVERKEFNI.pdf | 258.7 kB | Lokaður | Yfirlýsing |