Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/40382
Þessi ritgerð beinir sjónum að því ástandi sem skapaðist hjá nokkrum starfsstéttum á sviði tónlistar og annarra sviðslista þegar sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda vegna Covid-19 tóku gildi eða breyttust. Teknar eru saman í stórum dráttum sóttvarnaraðgerðir frá stjórnvöldum til þessa dags sem breyttu samkomutakmörkunum. Skoðuð eru almenn áhrif þeirra á störf þessara hópa listafólks. Einnig er komið inn á aðstoð stjórnvalda til þeirra. Ritgerðin felur í sér fræðilega úttekt á áhrifum tónlistar og aðlögunarhæfni einstaklinga eða hópa þegar miklar breytingar verða. Tekin eru mörg dæmi um viðtöl við fólk í þessum geira á meðan ástandið varir. Aukin notkun á streymistónleikum er skoðuð meðal annars með tilvitnun í fjölmiðla og skýrslur þar sem um þessi mál er fjallað. Framkvæmd er eigindleg rannsókn á stöðu mála hjá nokkrum einstaklingum sem vinna við tónlist, tónleikahald og sviðslistir. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að gríðarlegt álag og tekjumissir við setningu samkomutakmarkana hafi haft mikil áhrif á þessar starfsstéttir.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd - Jonas Thor Runarsson - Skemman.pdf | 426.09 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
Skemman_yfirlysing Jonas Thor.pdf | 192.91 kB | Locked | Declaration of Access |