is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/4043

Titill: 
  • Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð : rekstrarleg áhrif af sameiningu
Titill: 
  • Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð : a merge impact on operation
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni um sameiningu er skoðuð rekstrarþróun tveggja sveitarfélaga á sunnanverðum Vestfjörðum frá árinu 2003 til ársins 2008. Samanburður er gerður við rekstur annarra sveitarfélaga með sambærilega íbúatölu og þau sveitarfélög sem eru til skoðunar. Gerð er framtíðarsýn fyrir þessi tvö sveitarfélög, hvort fyrir sig, til ársins 2013 svo leiða megi fram getu þeirra til að standa á bak við lögbundin verkefni sín. Einnig er gerð framtíðarsýn fyrir þessi tvö sveitarfélög ef til sameiningar þeirra kæmi og hvort áætluð samlegðaráhrif af þeirri sameiningu gæfi þeim aukna getu til að sinna sínum verkefnum. Í verkefninu er farið yfir sameiningar almennt og með tilliti til sveitarfélaga og skoðað eftir hverju er verið að leita með sameiningum. Einnig er farið yfir verkefni sveitarfélaga fyrr á öldum, sögu þeirra og þróun frá þjóðveldisöld og hvaða lögbundnum verkefnum þeim er ætlað að sinna. Rekstrarframsetning þeirra er kynnt og hvaða tekjustofna þau hafa. Kynnt er saga sveitarfélaganna Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar ásamt íbúaþróun þeirra og atvinnusamsetningu í dag. Niðurstöður verkefnisins eru þær að til framtíðar er rekstrarlega erfitt fyrir sveitarfélögin að sinna verkefnum sínum og skuldbindingum nema með breyttum forsendum. Slíkar forsendur felast meðal annars í sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga

Samþykkt: 
  • 23.10.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4043


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
halldor_hermannsson_fixed.pdf1.85 MBOpinnRitgerðin öllPDFSkoða/Opna