is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Hólum > Ferðamáladeild > BA verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/40430

Titill: 
  • Starfsmannavelta í íslenskri ferðaþjónustu : ávinningur þess að hlúa vel að starfsfólki
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Starfsmannavelta er talin vera eitt af því sem einkennir ferðaþjónustu. Mannauður ferðaþjónustufyrirtækja er ein mikilvægasta auðlind fyrirtækjanna sem nauðsynlegt er að huga að, þar sem það getur leitt til fjárhagslegs ávinnings fyrir fyrirtækin.
    Í skýrslunni sem hér um ræðir er greint frá verknámi skýrsluhöfundar á Hótel Langaholti sem staðsett er á sunnanverðu Snæfellsnesi. Viðfangsefnið á verknámsstað snéri að móttöku og þjálfun nýliða hjá fyrirtækinu. Útbúinn var gátlisti sem hugsaður er fyrir eftirfylgni nýrra starfsmanna hjá fyrirtækinu. Ásamt því sem fyrsta uppkast var búið til af kennsluhandbók, sem hugsuð er fyrir stjórnendur fyrirtækisins þegar kemur að kennslu og þjálfun nýliða.
    Í verknáminu var rannsóknarspurning skýrslunnar jafnframt mótuð og er hún eftirfarandi: Hvaða áhrif getur móttökuferli nýliða og starfsánægja á vinnustað haft á starfsmannaveltu ferðaþjónustufyrirtækja?
    Til að svara spurningunni var unninn fræðilegur kafli meðal annars um starfsmannaveltu, móttökuferli nýliða og starfsánægju á vinnustað. Í ljós kom að móttökuferli nýliða og starfsánægja geta hvort um sig haft áhrif á starfsmannaveltu ferðaþjónustufyrirtækja.
    Lykilorð: Ferðaþjónusta, mannauðsstjórnun, nýliðamóttaka, starfsánægja, starfsmannavelta.

  • Útdráttur er á ensku

    Employee turnover rate is thought to be one of defining aspects of the travel industry in Iceland. Human resources are extremely valuable for companies in this sector and it is necessary to pay attention too for the rewards it offers. This report will disclose the internship of the author at Hotel Langaholt which is on the southern side of Snæfellsnes Peninsula. The subject of the internship was the introduction
    and training of new employees at the company. A checklist was created for the process of new employees as well as the first draft of a guidance book for senior staff member doing the training. During the internship the research question was molded and is it as follows: What effect can the recruitment process of new employees and job satisfaction in the workplace have on the employee turnover in the hospitality sector? To answer this question a theoretical chapter was worked on about the employee turnover, new employees and job satisfaction. It turned out that the employee turnover as well as employee satisfaction both impact the employee turnover rate in the hospitality sector.
    Keywords: Tourism, human resource management, new employees, job satisfaction, employee turnover.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 01.01.2050.
Samþykkt: 
  • 7.2.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/40430


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA Heimildaskra_Starfsmannavelta i islenskri ferdathjonustu. Avinningur thess ad hlua vel ad starfsfolki.pdf101,19 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna
BA Starfsmannavelta i islenskri ferdathjonustu. Avinningur thess ad hlua vel ad starfsfolki.pdf403,75 kBLokaður til...01.01.2050HeildartextiPDF
BA Efnisyfirlit_Starfsmannavelta i islenskri ferdathjonustu. Avinningur thess ad hlua vel ad starfsfolki.pdf66,78 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna