Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/40534
Meginmarkmið rannsóknarinnar er að skoða stöðu sjálfbærnismála í ferðaþjónustu á Íslandi. Við stöndum á tímamótum í umgengni við náttúruna og hvernig við getum notið hennar á sjálfbæran hátt. Mikil umræða hefur verið upp á síðkastið um loftslagsmál og aukna sjálfbærni og samfélagsábyrgð í öllum atvinnugeirum og þar með talið í ferðaþjónustu. Í þessari rannsókn verður kannað hvar við stöndum í sjálfbærni í ferðaþjónustu á Íslandi í dag. Markmið rannsóknarinnar er að reyna finna svör við hver eru lykilatriði til árangurs svo ferðaþjónustuaðilar tileinki sér sjálfbærni í sínum störfum og einnig hverjar helstu áskoranir standa í veg fyrir þeirri þróun. Heimsfaraldurinn Covid-19 setti að auki sitt mark á þessa þróun sem og ferðaþjónustunna í heild sinni en kannað var einnig þau mögulegu áhrif.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að að staða ferðaþjónustunnar í sjálfbærni sé ekki nógu góð og lykilatriði til árangurs sé að efla fræðslu um sjálfbærni og hvernig megi innleiða hana betur og framkvæma, koma með efnahagslegan hvata sem styður við þessa breytingu sem og auka aðhald til þess að ferðaþjónustuaðilar standi sig betur í þessum málefnum. Á sama tíma má lýta sem helstu áskorun að efla skilning, breyta hugarfari gagnvart sjálfbærni sem og heimsfaraldur setti sitt strik í reikninginn í átt að þessari sjálfbærri þróun ferðaþjónustu Íslands.
Lykilorð: Ferðaþjónustan á Íslandi, sjálfbærni, lykilatriði til árangurs, helstu áskoranir.
As a society, we are at a crossroads in dealing with nature and how we can enjoy it in a more sustainable way. There has been a great deal of discussion lately about climate issues and increased sustainability in all sectors of the economy, including tourism. This study will examine where we stand in sustainability in the tourism industry today in Iceland and what can possibly be done better. The aim of the study is to try to find answers to what are the key to success so that tourism operators aquire sustainability in their work and also what the main challenges stand in the way of that development. The Covid-19 pandemic also left its mark on this development, as well as for the tourism industry as a whole, so these possible effects were also investigated.
The results if the study show that the state of sustainability in tourism in Iceland is not good enough and a key factor for success is to strengthen education about sustainability and how it can be better implemented and operated more efficiently. Another key factor is to bring more economic incentives that support this change as well as increase restraint to make tourism operators more motivated to work with sustainable tourism. The main challenge was to raise more awareness about sustainble tourism, change attitudes towards sustainability and also with the Covid pandemic has taken its toll towards this development.
Keywords: Tourism in Iceland, sustainability, sustainable tourism, major key to success, key challenges towards sustainble tourism.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Harpa Rún Hilmarsdóttir_BS_Lokaverkefni..pdf | 683,54 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |