Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/40634
Í ritgerðinni er fjallað um húsaleigusamninga og þá sérstaklega vanefndaúrræði þau er leigusala fasteignar er heimilt að nýta og styðjast við vegna vanefnda leigutaka á samningi þeirra á milli.
Athugaðar verða reglur húsaleigulaga nr. 36/1994 en lögin gilda um leigusamninga um afnot af húsnæði eða hluta af húsnæði gegn endurgjaldi. Í ritgerðinni er aðeins horft til leigusamninga um íbúðarhúsnæði. Húsaleigulögin eru ófrávíkjanleg og taka bæði til íbúðar- og atvinnuhúsnæða. Farið er yfir húsaleigusamninga og einkenni þeirra almennt, greiðsludrátt leigutaka sem og annarra vanefnda á samningi aðilanna og til hvaða réttarúrræða leigusali getur gripið í þeim tilvikum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð VVK.pdf | 468.13 kB | Lokaður til...01.01.2050 | Heildartexti | ||
BA.VVK.skilaskjal.pdf | 63.95 kB | Lokaður | Yfirlýsing |