is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/40711

Titill: 
  • "Þetta er svo næs staður": ungmenni og Amtsbókasafnið á Akureyri
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ungmenni eru sá aldurshópur sem almenningsbókasöfn hafa átt hvað erfiðast með að ná til. Mikil þróun hefur átt sér stað á starfi almenningsbókasafna undanfarna áratugi. Meiri áhersla er nú lögð á bókasöfn sem samkomustað og vettvang sem fólk getur nýtt eftir eigin höfði. Þrátt fyrir þessar breytingar vilja sumir meina að bókasöfn séu gamaldags stofnanir í hugum ungmenna og að þau sjái ekki tilgang með heimsóknum þangað.
    Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hugmyndir ungmenna um almenningsbókasöfn og með hvaða hætti þau telji að bókasöfn geti bætt þjónustu sína við sinn aldurshóp. Tekin voru eigindleg viðtöl við átta ungmenni á aldrinum 13-17 ára og þrjá fullorðna einstaklinga sem vinna náið með ungmennum. Allir viðmælendur eru búsettir á Akureyri og nágrenni og því taka svör þeirra fyrst og fremst mið af Amtsbókasafninu á Akureyri. Ungmennin í rannsókninni eru flest notendur bókasafnsins og lesa sér til skemmtunar. Viðhorf þeirra eru því ekki endilega dæmigerð fyrir öll ungmenni. Almennt voru ungmennin jákvæð í garð Amtsbókasafnsins en lögðu þó fram ýmsar tillögur að úrbótum. Að mati þeirra væri hægt að auka sýnileika bókasafnsins til muna og þar eru samfélagsmiðlar mikilvægt verkfæri. Þau telja að bókasafnið sé á vissum stalli sem mörg ungmenni tengi ekki við og það þurfi að koma því betur til skila að almenningsbókasöfn séu fyrir alla. Það sé meðal annars hægt að gera með því að hampa því afþreyingargildi sem bókasafnið hefur. Til þess að ná betur til ungmenna þarf að eiga sér stað virkt samtal svo ungmennin átti sig á að þau geti haft áhrif á þjónustu bókasafnsins.

  • Útdráttur er á ensku

    Teens and young adults are an age group that public libraries have had difficulty reaching. The role of public libraries has developed significantly in recent decades. More emphasis is now being placed on libraries as a meeting place and a platform that people can use on their own. Despite these changes, some would argue that in the minds of teens and young adults’ libraries are old-fashioned institutions and that they don’t see a point in using them.
    The aim of this study is to shed light on teen and young adults’ ideas about public libraries and how they think libraries can improve their services to them. Qualitative interviews were conducted with eight teens and young adults aged 13-17 and three adult employees of youth centers. All interviewees live in Akureyri and the surrounding area and therefore their answers are primarily based on the Municipal Library in Akureyri. Most of the youth in the research are users of the library and read for fun. Their attitudes are therefore not necessarily typical of all teens and young adults. In general, the youth had positive opinions of the library, but made various suggestions for improvement. In their opinion, the library could significantly increase its visibility among young people, highlighting the importance of social media. They believe that to many the library is on a pedestal that many teens and young adults do not associate with. They believe that it needs to be made clear that public libraries are for everyone. One way that can be done, is by highlighting the library's entertainment value. To attract teens and young adults to the library it needs to deliver the realization that youth can influence the library's services and use it as a platform for themselves.

Samþykkt: 
  • 29.4.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/40711


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Þetta er svo næs staður.pdf667,37 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
yfirlýsing.pdf46,81 kBLokaðurYfirlýsingPDF