Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/40752
Þessi ritgerð mun rannsaka lýsingar á náttúrulegu landslagi og einstökum tengslum þess við tilfinningar og hugmyndir um sjálfsmynd og sjálfið í Grettis sögu Ásmundarsonar. Sagan hefur verið rannsökuð út frá margvíslegum sjónarhornum, þar sem fræðimenn hafa einbeitt sér að samfélagslegum og pólitískum hlutverkum, eðli útrásarvíkinga frá víkingaöld og hið yfirnáttúrulega. Mörg verk hafa einnig rannsakað persónur sögunnar, en mynd Grettis Ásmundarsonar vakti sérstakan áhuga fræðimanna um miðja og lok 20. aldar. Nýlega hefur áberandi umhverfisvitund nútímans leitt til þess að fræðimenn hafa rannsakað lýsingu og notkun landslags í Grettis sögu. Það hefur hins vegar ekki enn farið fram umfangsmikil rannsókn á tengslum milli sjálfsmyndar og tilfinningalegrar stöðu aðalpersónunnar og lýsingum á náttúrulegu umhverfi sögunnar. Íslendingasögur einkennast oft af því að persónur þeirra eru ekki að flíka tilfinningum sínum og er Grettis saga engin undantekning. Með því að skoða náttúrufarið í Grettis sögu mun þessi ritgerð sýna fram á að tilfinningar og sjálfsmynd aðalpersónunnar eru undir verulegum áhrifum náttúrunnar og að landslagslýsingar séu mikilvægur miðill til að miðla innri Grettis. Sem útlagasaga inniheldur Grettis saga fleiri lýsingar af náttúrulegu landslagi en margar aðrar sögur og því spilar landslag stórt hlutverk í sögunni. Þessi ritgerð mun varpa ljósi á hvernig lýsingar höfundar á náttúrulegu landslagi stuðlar að flóknu tilfinningalegu ferðalagi Grettis Ásmundarsonar og áframhaldandi baráttu hans við að finna sinn sess í mannlegu samfélagi.
This thesis will investigate the portrayal of the natural landscape and its unique relationship to emotions and ideas of identity and the self in Grettis saga Ásmundarsonar. The saga has been studied from a wide range of perspectives, with scholars focussing on societal and political roles, the nature of Viking Age outlaws, and the supernatural. Many works have also examined the saga’s characters, with the figure of Grettir Ásmundarson being of particular interest to scholars in the mid and late 20th century. Recently, the modern prominence of environmentalism awareness has resulted in several recent works investigating the portrayal and use of landscape in Grettis saga. However, there has not as yet been an extensive study of the link between the identity and emotional state of the main character and the portrayal of the natural environment in the saga. Icelandic sagas are often characterised by the lack of emotional displays by their characters, and Grettis saga is no exception. By examining the natural environment in Grettis saga, this thesis will show that the emotions and identity of the main character are significantly influenced by it and that the portrayal of landscape is an important medium through which Grettir’s internality is conveyed. As an outlaw saga, Grettis saga features more natural landscapes than many other sagas and therefore utilises these landscapes in more prominent thematic roles. This thesis will highlight these roles, showing how the author’s portrayal of natural landscape contributes to the complex emotional journey of Grettir Ásmundarson and his ongoing struggle to find his place within human society.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Emotional States and Identity in Grettis saga Ásmundarsonar - Maximillian Jesiolowski.pdf | 493,45 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Declaration of Access - Maximillian Jesiolowski.pdf | 151,47 kB | Lokaður | Yfirlýsing |