Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/4084
Í þessari ritgerð er gerð grein fyrir niðurstöðum rannsóknar sem gerð var í tveimur bekkjardeildum og beindist að þætti leiksins í lestrarkennslunni. Sérstaklega var leitast við að kanna hvort og þá hvernig leikur er notaður við kennslu í lestri og ritun ásamt því að skoða umhverfisþætti í skólastofunni sem stuðla með beinum eða óbeinum hætti að þróun læsis. Sem dæmi má nefna ritmál í umhverfinu og aðgengi að því. Í þeim tilgangi var sjónum sérstaklega beint að þeim verkefnum og viðfangsefnum þar sem börnin nota lestur og ritun við leik, þemavinnu eða í tengslum við aðrar kennsluaðferðir. Einnig var leitast við að fá svör við því hvaða skilning grunnskólakennarar leggja í hugtakið „leikur“.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Meistaraverkefni.pdf | 258.94 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |