Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41009
Óhófleg áfengisneysla er alþjóðlegt vandamál sem stjórnvöld um allan heim leggja áherslu á að berjast gegn. Hún veldur skaða fyrir neytendur, aðstandendur þeirra og samfélagið í heild. Misnotkun áfengis tengist margvíslegum heilsubresti, félagslegum vandamálum og glæpastarfsemi. Hún hefur bein áhrif á andlega og líkamlega heilsu einstaklinga og getur valdið sjúkdómum á borð við lifrarbólgu, krabbameini og áfengiseitrun. Einnig skapar hún aukið álag á löggæslu, dómskerfið og Fangelsismálastofnun vegna fjölda neyslutengdra afbrota og umferðarslysa. Óhófleg áfengisneysla eykur jafnframt álag á félagsmálakerfið vegna óreiðu og óreglu einstaklinga og fjölskyldna. Neyslan getur einnig gengið svo langt að hún valdi ótímabærri örorku eða dauðsföllum sem leiðir til glataðra tækifæra og minni framleiðni samfélagsins. Í þessari ritgerð er kostnaður af þessu metinn og tekinn saman. Rannsóknin miðar að því að greina þá byrði sem óhófleg neysla áfengis skapaði fyrir íslenska samfélagið árið 2021. Hún sýnir hvernig auðlindum samfélagsins er ráðstafað í sambandi við áfengisneyslu og getur meðal annars nýst við stefnumótun í málaflokknum. Við kostnaðarmatið er víða leitað fanga til að greina allar þær breytingar sem á kostnaði verða umfram það sem væri ef landsmenn neyttu áfengis alls ekki. Athugað er hvort samfélagslegur kostnaður vegna áfengisneyslu á Íslandi sé sambærilegur erlendum rannsóknum sem hafa metið hann á bilinu 0,45-6% af landsframleiðslu. Niðurstöður kostnaðarmatsins sýna að samfélagslegur kostnaður vegna áfengisneyslu á Íslandi nam 100.216,7 milljónum króna árið 2021. Það gera um 3% af landsframleiðslu sem er sambærilegt niðurstöðum erlendra rannsókna. Mestur kostnaður fellur til vegna ótímabærra dauðsfalla sökum áfengisneyslunnar en þar næst vegna þeirrar framleiðslu sem tapast þegar áfengisneytendur verða óvinnufærir vegna neyslunnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS RITGERÐ - LOKASKIL.pdf | 677,94 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
LOKAVERKEFNI.pdf | 571,88 kB | Lokaður | Yfirlýsing |