is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41018

Titill: 
  • Erlent vinnuafl á Íslandi: Hver er staða innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Í þessari heimildaritgerð er verið að rýna í stöðu innflytjenda á íslenskum atvinnumarkaði. Það verður skoðað hvaða störf eru algengust meðal innflytjenda á Íslandi, hvar á Íslandi setjast innflytjendur helst að og hvaða rannsóknir hafa verið gerðar um innflytjendur sem koma til Íslands ásamt því að kanna réttindi þeirra á íslenskum atvinnumarkaði. Skoðað verður fordóma og mismunun sem innflytjendur þurfa að búa við á Íslandi sem og stöðu erlendra kvenna á Íslandi. Einnig verður skoðað atvinnuleysi og atvinnuþátttöku innflytjenda á Íslandi. Síðast verður rýnt í menntun og kjör innflytjenda og athugað hvort mismunað sé innflytjendum á grundvelli kjara sem og hvar launamismunurinn liggur. Rannsóknaspurningin er: Hver er staða innflytjenda á Íslenskum atvinnumarkaði? Niðurstöður ritgerðarinnar segja til um erfiða stöðu innflytjenda á Íslandi. Þrátt fyrir fjölmarga innflytjendur hér á landi þá er staða þeirra ekki allgóð. Innflytjendur þurfa margir hverjir að þola ýmsa fordóma og mismunun á atvinnumarkaði og í samfélaginu sjálfu. Staða innflytjenda á íslenskum atvinnumarkaði er erfið og eru flestir þeirra í láglaunastörfum og virðast vinna lengri vinnutíma og fleiri daga en innlendir. Erlendir á íslenskum atvinnumarkaði fá oft minna borgað en innlendir fyrir sín störf ásamt því að vera í áhættuhóp á að vera svindlað á sökum tungumálaerfiðleika og lítillar þekkingu á réttindum sínum.

Samþykkt: 
  • 6.5.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/41018


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS ritgerð - Ólöf María aðal.pdf435.05 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefnis.pdf232.85 kBLokaðurYfirlýsingPDF