Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/4109
Megintilgangur verkefnisins var að meta gæði vefja á sviði myndmenntar. Til þess að slíkt mat gæti farið fram var smíðaður gátlisti, sem tekur til allra helstu matsþátta og birtist í viðauka ritgerðarinnar. Þá var listinn prófaður og með honum lagt mat á áreiðanleika, innihald, virkni og hönnun nokkurra valinna vefja, auk kennslufræðilegra þátta þeirra.
Úttekt þessi leiddi í ljós prýðilegt safn vefja, sem nýst geta myndmenntakennaranum vel. Tveir af þremur íslenskum vefjum stóðust gæðamat með prýði og eiga því fullt erindi inn í íslenskar myndmenntastofur. Erlendu vefirnir henta jafnframt vel sem stuðningsefni við kennara.
Lykilorð: Námsefni,kennsluefni, matslisti, gátlisti
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
skemmuskil_fixed.pdf | 523,78 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
gatlisti_fixed.pdf | 108,2 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |