Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/411
Í þessari ritgerð er fjallað um niðurstöður athugunar á tónlistariðkun og áhrifa hennar á einkunnir nemenda í 8. bekk í Garðaskóla. Einnig er fjallað um niðurstöður athugunarinnar á áhuga nemendanna á tónlist. Athugunin var gerð árið 2006. Gerð var spurningalistakönnun með 30 spurningum tengdum tónlistariðkun og áhuga á tónlist. Síðan var unnið úr niðurstöðum spurningalistanna sem 64 nemendur úr 8. bekk í Garðaskóla svöruðu.
Helstu niðurstöður athugunarinnar eru að flestir nemendur í 8. bekk í Garðaskóla hafa mikinn áhuga á tónlist og margir hafa stundað tónlistarnám utan skóla. Einnig kemur fram að lítil fylgni er á milli áhuga á tónlist, hlustunar og þess að sækja tónleika og lesa tónlistartímarit ásamt því að hafa stundað tónlistarnám áður en komið var upp í 8. bekk. Það er fylgni á milli stærðfræðieinkunnar og þess að leggja stund á tónlistarnám en nánast engin fylgni er á milli einkunnar í íslensku og þess að leggja stund á tónlistarnám.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 346.39 kB | Open | Heildarskjal | View/Open |