en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/41286

Title: 
  • Title is in Icelandic Hætturnar leynast víða: Tíðni og áhættuþættir þrýstingssára á íslenskum gjörgæsludeildum
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Bakgrunnur: Þrýstingssár eru algeng meðal sjúklinga á gjörgæsludeildum vegna alvarleika veikinda og meðferðartengdra þátta.
    Markmið: Að kanna tíðni þrýstingssára hjá gjörgæslusjúklingum á Íslandi og bera saman klíníska áhættuþætti fyrir myndun þrýstingssára (öndunarvélameðferð, gjöf blóðþrýstingsstyðjandi– og slævingalyfja, vökustig, alvarleiki veikinda, hreyfing, tegund rúmdýnu, áhættumat á þrýstingssáramyndun) hjá sjúklingum sem dvöldu ≥ sjö daga á gjörgæsludeild (rannsóknarhópur) og  sex daga á gjörgæsludeild (samanburðarhópur). Aðferðir: Rannsóknin var megindleg, afturvirk samanburðarrannsókn með endurteknum tíðnimælingum þriggja rannsóknardaga árin 2018-2019 hjá gjörgæslusjúklingum ≥ 18 ára á Íslandi. Af 46 sjúklingum voru 17 í rannsóknarhópi og 26 í samanburðarhópi (N=43) því upplýsingar vantaði um dvalarlengd þriggja sjúklinga.
    Niðurstöður: Á rannsóknardögunum voru 22/46 gjörgæslusjúklingum (47,8%) með 41 þrýstingssár. Af gjörgæslusjúklingum í rannsóknarhópi voru 10/17 (58,8%) með 28 þrýstingssár samanborið við 13 þrýstingssár hjá 11/26 (42,3%) gjörgæslusjúklingum í samanburðarhópi en munur á fjölda þrýstingssára var ómarktækur (p=0,06) milli hópanna. Samanburður á klínískum áhættuþáttum fyrir myndun þrýstingssára sýndi að marktækt fleiri sjúklingar í rannsóknarhópi voru í öndunarvél (p=0,027) og voru slævðir (p=0,007) fram að rannsóknardegi, höfðu lægra vökustig (svæfðir dýpra) (p=0,05), stigun alvarleika veikinda meiri við innlögn á gjörgæsludeild (p=0,005), voru hreyfðir í gjörgæsludvöl (p=0,007), lágu á loftdýnu (p=0,001) og voru metnir í meiri áhættu á þrýstingssáramyndun (p=0,042) borið saman við samanburðarhóp. Ályktun: Þrýstingssár eru algeng á íslenskum gjörgæsludeildum. Mikilvægt er að huga að fyrirbyggjanlegum, klínískum áhættuþáttum fyrir myndun þrýstingssára gjörgæslusjúklinga. Fyrirbygging þrýstingssára er mikilvæg til að draga úr þjáningu sjúklinga, fyrirbyggja langvinn veikindi og lengri sjúkrahúsdvöl.
    Lykilorð: Þrýstingssár, áhættuþættir, lengd gjörgæsludvalar, gjörgæsludeildir, hjúkrun.

Accepted: 
  • May 17, 2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/41286


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Lokaverkefni. Hætturnar leynast víða. Tíðni og áhættuþættir þrýstingssára á íslenskum gjörgæsludeildum. María Kristjánsdóttir. Júní 2022..pdf3.82 MBOpenComplete TextPDFView/Open
Yfirlýsing.pdf13.49 MBLockedDeclaration of AccessPDF