Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41365
My car and I - Travel behaviour of young adults in Akureyri and their view on different environmental factors
Samfélögin sem mynda borgir stækka ört og verða fjölbreyttari. Kerfin sem mynda borgir verða einnig sífellt erilsamari og flóknari. Samgöngukerfi taka mikið pláss í þéttbýli en hvernig það er byggt upp er mjög fjölbreytilegt milli staða. Hreyfanleiki fólks er orðinn meiri. Dagleg vegalengd sem fólk getur ferðast orðin mun lengri en fyrir nokkrum áratugum og hefur ferðahegðun þess breyst samhliða því.
Markmiðið með þessari rannsókn var að skoða ferðahegðun og viðhorf framhaldsskólanema á Akureyri til ólíkra þátta í umhverfinu sem geta haft áhrif á val á ferðamáta. Rannsóknin byggir á spurningakönnun sem var lögð fyrir nemendur Menntaskólans á Akureyri. Þátttakendur voru beðnir um að svara spurningum sem sneru að daglegri ferðahegðun þeirra sem og að kanna viðhorf og afstöðu til ýmissa þátta af skipulags-, umhverfis- og/eða félagslegum toga. Aðaláherslan var á notkun einkabílsins sem ferðamáta til og frá skóla, en einnig var spurt út í almenna notkun utan skóla til að fá betri sýn á viðfangsefnið. Akureyri er lítill bær svo það ætti að vera auðvelt að ganga, hjóla eða nota gjaldfría strætisvagna á milli staða. Þrátt fyrir það er mikil einkabílamenning í bænum og hann skipulagður út frá bílnum.
Niðurstöðurnar sýndu fram á að einkabíllinn var algengasti ferðamáti þátttakenda. Þættir eins og veður, færð og einfaldleiki réðu mestu í vali á ferðamáta. Umhverfissjónarmið og kostnaður skiptu litlu máli þegar kom að valinu. Fæstir sem notuðu einkabílinn sáu fyrir sér að breyta sínum helsta ferðamáta. Einkabíllinn virtist einnig auka sjálfstæði þátttakenda og gefa tækifæri á fjölbreyttara félagslífi.
The communities that form cities are growing rapidly and becoming more diverse. The systems that make up cities are also becoming increasingly busier and complex. Transit systems take up a lot of space in urban environment but how they are built varies a lot between places. People’s mobility has grown and the daily commute a person can travel has
become longer than some decades ago and people‘s travel behaviour has changed along with that.
The aim of this thesis was to observe travel behaviour and views of secondary school students in Akureyri regarding different factors in the environment that can affect their choice of mode of travel. The research is made of a quantitative study and the participants all attended Akureyri Junior College. Participants were asked to answer questions about their daily travel behaviour as well as to examine views and opinions towards various aspects from an organizational, environmental and/or social perspective. The main focus was on the use of the automobile as a mode of travel to and from school. Furthermore, to get a better view of the subject, participants were asked about their daily commute outside of school. Akureyri is a small town therefore it should be easy to walk, ride a bike or take a free bus between places. Despite that, the town has a vast private car culture and is clearly characterized by excessive use of the car
The results showed that the private car was the participants most common way of travel. Factors such as weather, road conditions and simplicity mostly determined the choice of mode of travel. Environmental aspects and expenses did not make a difference when it came to choosing a travel mode. Few participants who already used their car as main mode of travel thought it was likely they would change their main way of travel. The private car seemed to increase participants’ independence and also provide them with more opportunities for a diverse social life.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| lísbetperla_bs.pdf | 1,7 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| LísbetPerla_Yfirlýsing.pdf | 111,99 kB | Lokaður | Yfirlýsing |