Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41380
Hreyfanleiki fatlaðs fólks afmarkast mjög af félagslegum viðhorfum og venjum á því hvernig hið byggða umhverfi er hannað. Gott aðgengi er mikilvægt svo að fatlað fólk geti tekið þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Óaðgengilegar byggingar og annað hamlandi rými veldur því hins vegar að fatlað fólk hefur ekki sömu möguleika að njóta réttar sem ófatlaðir samborgarar hafa. Eitt af markmiðum núgildandi laga um mannvirki og núgildandi byggingarreglugerðar er að tryggja aðgengi fyrir alla. Í rannsókninni er lagt upp með að kanna framboð af veislusölum á höfuðborgarsvæðinu og hvaða upplýsingar um hjólastólaaðgengi að þeim er að finna á vefsíðum. Einnig er leitað svara við því hvernig hjólastólaaðgengi er að völdum veislusölum á höfuðborgarsvæðinu. Til að svara þessum spurningum var gerð innihaldsgreining á upplýsingum um aðgengi að sölunum á vefsíðum og einnig var farið í fjórar vettvangsathuganir þar sem hjólastólaaðgengi salanna var metið. Niðurstöður sýna að hægt er að finna upplýsingar um aðgengi að tæplega helmingi þeirra 125 sala sem skoðaðir eru í rannsókninni. Hjólastólaaðgengi að þeim sölum sem voru skoðaðir í vettvangsferðunum var afar misjafnt en skortur á sérmerktum bílastæðum fyrir fatlaða, of brattar skábrautir og rými á misháum pöllum voru meðal þess sem mætti betur fara.
The mobility of people with disabilities is limited by sociocultural norms and ideas of how the built environment is desigend. Accessibility is important so that disabled people can participate in society the same way non-disabled people can. However, inaccessible buildings and restrictive spaces mean that disabled citizens do not have the same opportunities to enjoy the rights that non-disabled citizens have. Current building code act and current building code regulation aims to ensure accessibility for all. This study aims to examine the availability of reception halls in the capital area and what information on accessibility to them can be found on the internet. Moreover to examine wheelchair access to selected reception halls in the capital area. Content analysis and on-site observation where conducted to answer these questions. Conclusions show that information on accessibility can be found on almost half of the 125 reception halls examined in the study. Accessibility varied and steep ramps and the lack of marked parking spots for the disabled were among things that could be improved.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Hjólastólaaðgengi að veislusölum á höfuðborgarsvæðinu.pdf | 1,45 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| Yfirlýsing um meðferð lokaverkefna.pdf | 536,65 kB | Lokaður | Yfirlýsing |