Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41408
Rannsóknaverkefnið byggir á þekktum skilgreiningum á samfélagsgerðum og horfir til innri þátta dýrasamfélaga á sjávarbotni. Sem mælikvarði er notaður fjöldi einstaklinga mismunandi tegunda. Rannsakað er hvort hægt sé að skýra mun á samfélögum sem verða til og þrífast við sambærilegar umhverfisaðstæður, s.s. botngerð, dýpi, strauma, TOC, Redox eða pH, með því að rannsaka fylgni milli tegunda innan samfélaga og meta hvort þær niðurstöður stjórni þannig mun á samfélagsgerðum á samskonar sjávarbotni. Niðurstöðursýna að fylgni er á milli tegunda, sem bendir til að hér sé um að ræða mikilvægan þátt sem hafi umtalsverð áhrif á samfélagsgerð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS ritgerð SIJ-mai-2022_GTH.pdf | 1,35 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing Sigurður Ívar Jónsson kt 2606982819.pdf | 63,47 MB | Lokaður | Yfirlýsing |