Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/4152
Endurnýjanleg orka er sífellt meira á dagskrá. Litið hefur verið til metanvinnslu á landbúnaðarsvæðum sem slíka orkuuppsprettu. Ísland er vel í stakk búið til að byggja upp metanvinnslu á landbúnaðarsvæðum og nýta metan í stað innfluttrar orku.
<p>
Markmiðið í þessari rannsókn var að finna vænlegar staðsetningar fyrir gerjun á búfjáráburði og öðrum landbúnaðarúrgangi til metanvinnslu á Suðurlandi. Einnig var markmiðið að meta hve mikið magn af búfjáráburði og öðrum úrgangi félli til á hverju vinnslusvæði fyrir sig. Athugaðar voru helstu tæknilausnir við framleiðslu og notkun á metani ásamt félagslegum áhrifum metanvinnslu til sveita.
<p>
Meginniðurstöður rannsóknarinnar er að nokkrar staðsetningar í hjarta landbúnaðarsvæða eru fýsilegar til nánari skoðunar, þá helst við Flúðir og í Landeyjum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
metan_fixed.pdf | 888,3 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |