Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/41593
Uppbygging dreifikerfis Veitna hefur verið mikil á síðustu árum. Með þessari uppbyggingu hefur búnaður og aðstæður orðið margfalt öruggari og skammhlaupsstraumar í lágspennuhluta hafa snarlækkað á þeim svæðum sem liðavarnarbúnaði hefur verið komið fyrir.
Markmið verkefnisins er að sýna fram á ótvíræða kosti þess að skipta út gamaldags loftrofabúnaði með háspennuvörum fyrir rofabúnað í einangruðu lofttæmi með liðavörn með tilliti til öryggis og afhendingar.
Útskýrt er í stuttu máli hvernig liðavörn í aðveitustöðinni virkar og reynt að sýna fram á færni sem hægt er að tileinka sér í náminu til dýpri skilnings.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Aukning öryggis og rekstraröryggis í dreifiveitum.pdf | 3.03 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |