Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/4176
Markmið verkefnisins var að kanna kjörskilyrði er varðar framleiðslu á fituefnum, sem innihalda ómega-3 fitusýrurnar eikósapentaensýru (EPA, 20:5n-3) og dókósahexaensýru (DHA, 22:6n-3) í hita- og kuldakærum þörungum. Aðallega var sóst eftir háu hlutfalli af EPA en einnig þótti jákvætt ef hlutfall DHA var hátt. Þrjár tegundir hitakærra (kúlulaga-, þráðlaga- og grænþörungar) og tvær tegundir kuldakærra (Melosira og Amphiprora) þörunga voru ræktaðir við mismunandi skilyrði, hitastig, ljósstyrk, sýrustig og æti. Þörungasýnin voru fitudregin í lífrænan leysi. Hluti sýnanna voru keyrð á þunnlagsskilju til þess að einangra þríglýseríðin. Heildar fituefni og þríglýseríð voru sápuð og fitusýrur metýleraðar. Að lokum voru fitusýrumetýlesterar fituefnanna í þörungunum greindir í gasgreini og gögnin flutt yfir í gasgreiningarforrit HP Chemstation til úrvinnslu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS verkefni_fixed.pdf | 1,44 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |