is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4180

Titill: 
  • Hver á landið? Barátta frumbyggja gegn stórfyrirtækjum og stjórnvöldum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð mun ég leitast við að varpa ljósi á aðstæður og réttindabaráttu
    frumbyggja sem búa á landsvæði sem stórfyrirtæki og stjórnvöld ásælast. Lögð verður
    áhersla á þá togstreitu og átök sem geta myndast á milli þessara hópa. Umræða um
    réttindabaráttu frumbyggja er ekki einföld og það ríkir ekki einhugur um hverjir geti
    talist til frumbyggja og hvort þeir eigi rétt á einhverjum sérréttindum yfir höfuð. Hér
    mun ég beina athyglinni að aðstæðum Adivasi, frumbyggjum Indlands, og baráttu
    þeirra gegn eignanámi á landi. Þeir hafa átt undir högg að sækja vegna
    stóriðjuverkefna og ríkisstjórn Indlands er legið á hálsi fyrir það að mistakast að
    vernda réttindi þeirra. Réttindabaráttu frumbyggja hefur vaxið fiskur um hrygg
    síðastliðna áratugi og hefur þeim orðið margt ágengt í baráttu sinni. Ásókn
    stórfyrirtækja í landsvæði utan vesturlanda hefur hinsvegar aukist og eykur það
    líkurnar á þvinguðum brottflutningum frumbyggja frá heimkynnum þeirra. Ég mun
    taka fyrir um þrjú dæmi um aðstæður Adivasi á Indlandi til þess að varpa ljósi á þetta
    málefni. Það er óhætt að fullyrða að það er langt í land með að frumbyggjar fái kröfur
    sínar um landréttindi og önnur réttindi uppfylltar þrátt fyrir sáttmála og alþjóðleg
    mannréttindalög.

Samþykkt: 
  • 30.12.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4180


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
frumbyggjar_fixed.pdf1.2 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna