is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41836

Titill: 
  • Titill er á ensku The Social Act of Drinking Coffee
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Félagsfræðingar hafa lengi rannsakað ávana- og fíkniefnaneyslu frá hinum ýmsu hliðum. Athygli vekur þó að lítið er um félagsfræðilegar rannsóknir á vinsælasta og útbreiddasta ávanabindandi efninu í heiminum í dag, koffíni, sem langflestir neyta í formi kaffis. Fyrri rannsóknir sýna að efnafræðileg virkni segir ekki alla söguna um áhrif og upptök ávana- og fíkniefnaneyslu. Þess í stað er neysla ávana- og fíkniefna í grunninn félagslegt athæfi og mikill félagslegur lærdómur liggur að baki þess að byrja að nota efnin sér til ánægju og/eða til þess að geta notið þeirra. Í þessari rannsókn er sjónum beint að kaffi – „félagslegasta lyfinu“. Spurt er: Hvernig lærir fólk að drekka kaffi sér til ánægju og hver eru áhrif þessa? Til að svara rannsóknarspurningunni voru framkvæmd sex hálfstöðluð viðtöl við einstaklinga á aldrinum 25 til 45 ára sem allir höfðu það sameiginlegt að drekka kaffi að staðaldri. Í anda fyrri rannsókna á ávana- og fíkniefnaneyslu benda niðurstöðurnar til þess að fólk byrji ekki að drekka kaffi upp á eigin spýtur heldur lærir það af öðrum sem hafa reynslu af kaffidrykkju. Að sama skapi fannst viðmælendum kaffi hrikalega bragðvont í fyrstu og þurfti tíma og félagsnám til að læra að meta bragðið, njóta kaffidrykkju og kalla fram „réttu“ áhrifin. Einnig kom í ljós að kaffi er mjög félagslegt efni. Fólk hittist til þess að drekka kaffi, notar það sem afsökun til þess að kíkja í heimsókn og býður upp á það við hin ýmsu tilefni. Kaffidrykkja getur einnig þróast upp í einskonar athöfn þar sem kaffi verður að nokkurs konar „aðgangseyri“ í heimsóknum og kaffipásum. Kaffi er einnig notað sem tákn um smekk og þess menningarlega auðmagns sem viðkomandi býr yfir.
    Lykilorð: kaffi, koffín, ávanabindandi, félagslegt, félagsnám, athöfn, menningarlegt auðmagn

  • Útdráttur er á ensku

    Social scientists have long researched addictive and narcotic drug use from various perspectives. However, it is interesting that few such studies exist on caffeine. Caffeine is the most popular and widespread addictive drug in the world, most commony consumed in the form of coffee. Studies have shown that chemical properties do not tell the whole story of the effects and initiation of drug use. Rather, drugs are a profoundly social phenomenon and there is a lot of social learning behind recreational drug use. This study focuses on coffee—“the most social drug”. This thesis asks the question: hHow do people learn to drink coffee for pleasure and to what effect? To answer the question, six semi-structured interviews were conducted on six active coffee drinkers between the ages of 25 and 45. Consistent with previous studies on drug use, the results suggest that people do not start drinking coffee by themselves, but rather they learn from other experienced coffee drinkers. Interviewees generally found the taste of coffee terrible when they first started “training”, and needed time and social learning to come to appreciate the flavour, enjoy it, and produce the desired effects. Results also show that coffee is a highly social drug; people meet others to drink coffee, use it as an excuse to pop over for a visit, and offer it to others on various occasions. Coffee often becomes the center of interaction rituals, in family and work place settings and lastly, we also use coffee to display our taste and cultural capital.
    Keywords: coffee, caffeine, addiction, sociology, social learning, ritual, cultural capital

Samþykkt: 
  • 13.6.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/41836


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
The Social Act of Drinking Coffee - ÞMRE.pdf479,31 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna