is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/4184

Titill: 
  • Starfsmannavelta hjúkrunarfræðinga, hjúkrunarþyngd og veikindafjarvistir
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort tengsl væru á milli hjúkrunarþyngdar
    og starfsmannaveltu og veikindafjarvista hjúkrunarfræðinga. Einnig var
    starfsmannavelta hjúkrunarfræðinga skoðuð, hjúkrunarþyngd og umfang
    veikindafjarvista hjúkrunarfræðinga.
    Mannekla í hjúkrun er viðfangsefni sem brýnt er að finna lausn á, ekki síst í
    ljósi þess að samkvæmt spám mun mannekla verða meiri á komandi árum ef
    ekkert er aðhafst. Því er oft haldið fram að álag á hjúkrunarfræðinga og annað
    heilbrigðisstarfsfólk sé alltaf að aukast og það geti leitt til þess að þeir gefist upp
    og segi starfi sínu lausu. Þetta aukna álag getur einnig orðið til þess að hjúkrunarfræðingar
    þurfi að vera meira frá vinnu vegna veikinda.
    Þýði rannsóknarinnar var hjúkrunarfræðingar á öllum deildum Landspítalans
    en úrtakið var fastráðnir hjúkrunarfræðingar á legudeildum á lyflækningasviðum
    I og II og skurðlækningasviði árið 2008. Meðalfjöldi hjúkrunarfræðinga á
    þessum þremur sviðum var 334 árið 2008. Það eru rúm 26% allra hjúkrunarfræðinga
    á Landspítalanum. Rannsóknarsniðið var megindlegt, lýsandi
    rannsóknarsnið. Fengin voru gögn úr starfsemisupplýsingum Landspítalans um
    starfsmannaveltu og fjarvistir hjúkrunarfræðinga og gögn úr skrám yfir
    hjúkrunarþyngd úr sjúklingabókhaldi. Niðurstöður fengust með tíðnidreifingu,
    meðaltölum og fylgniprófum.
    Helstu niðurstöður voru að tengsl milli starfsmannaveltu hjúkrunarfræðinga,
    hjúkrunarþyngdar og veikindafjarvista væru ekki tölfræðilega marktæk. Það er
    því ekki hægt að álykta sem svo að aukið álag vegna hjúkrunarþyngdar verði til
    þess að hjúkrunarfræðingar verði frekar veikir eða skipti um starfsvettvang.
    Meðalstarfsmannavelta var 10,89% árið 2008 og meðalbráðleiki sjúklinganna var
    1,10, sem er innan þeirra marka sem eðlileg geta talist. Þrátt fyrir þessar
    niðurstöður er eftirtektarvert að sjá hve miklar veikindafjarvistir voru meðal
    iv
    hjúkrunarfræðinga, eða að meðaltali 12 veikindadagar á ári hjá hverjum
    hjúkrunarfræðingi í úrtakinu.

Styrktaraðili: 
  • Vísindasjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Vísindasjóður LSH
Athugasemdir: 
  • Elísabet Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur M.S., sat í meistaranámsnefndinni.
Samþykkt: 
  • 6.1.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4184


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaeintak_fixed.pdf694,27 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna