is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41865

Titill: 
  • Erfitt og eitthvað sem að maður gerir ekki ráð fyrir : reynsla kvenna sem byrja í eðlilegri fæðingu en enda í bráðakeisaraskurði.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Konur sem enda í bráðakeisaraskurði eru líklegri til þess að upplifa neikvæða fæðingarreynslu en konur sem fæða eðlilega eða fæða með valkeisaraskurði. Þær fá gjarnan þá tilfinningu að þær séu búnar að missa stjórn, óttast jafnvel um líf sitt og barnsins, finna fyrir kvíða og vonbrigðum yfir því að fæðingin hafi ekki endað eins og þær vonuðust til. Tilgangur: Var að öðlast dýpri skilning á reynslu kvenna sem byrja í eðlilegri fæðingu en þurfa að fara í bráðakeisaraskurð. Aðferð: Þessi rannsókn var gerð með fyrirbærafræðilegri nálgun og stuðst var við aðferð Vancouver-skólans. Úrtakið var tilgangsúrtak þar sem skilyrði fyrir þátttöku voru; að tala íslensku, að hafa byrjað í eðlilegri fæðingu og endað í bráðakeisaraskurði, að minnsta kosti væru liðnir sex mánuðir síðan barnið fæddist og ekki meira en fimm ár væru liðin frá fæðingu. Auglýst var eftir þátttakendum á Facebook hópnum Mæðratips og tekið var eitt viðtal við hvern þátttakenda, þar sem stuðst var við viðtalsramma, samtals 12 viðtöl. Niðurstöður: Konurnar lýstu blendnum tilfinningum eins og vonbrigðum, hræðslu og það að óttast um líf sitt og barnsins, jafnframt fundu þær fyrir ákveðnum létti. Yfirþemað var erfið reynsla: eitthvað sem að maður gerir ekki endilega ráð fyrir að gerist, lýsir því hvernig konurnar upplifuðu það sem áfall að þurfa að fara í bráðakeisaraskurð og að þær hefðu verið lengi að vinna úr þeirri lífsreynslu. Megin þemun voru sjö: að þurfa fara í bráðakeisaraskurð, andleg líðan, áhrifaþættir, líkamleg líðan, fræðsla og eftirfylgni, maki og stuðningsaðilar og líðan í dag. Síðan voru greind undirþemu undir meginþemunum. Ályktun: Það að byrja í eðlilegri fæðingu og fara í bráðakeisaraskurð reynist konum erfið og oft flókin lífsreynsla þar sem stuðningur ljósmæðra getur haft mikil áhrif á upplifun kvennanna. Lykilorð: Bráðakeisaraskurður, fæðingarupplifun, andleg líðan, reynsla, áfall, fræðsluþarfir, eftirfylgni, ljósmóðurfræði, fyrirbærafræði, Vancouver-skólinn.

  • Útdráttur er á ensku

    Background: Women who end up in an emergency caesarean section are more likely to experience a negative birth experience than women who give birth normally or give birth with a planned caesarean section. They often get the feeling that they have lost control, even fear for their lives and the baby, and feel anxious and disappointed that the birth did not end as they had hoped. Purpose: Was to gain a deeper understanding of the experience that women have that begin in normal labour and then must undergo an emergency caesarean section. Method: This study was conducted using a phenomenological approach, based on the Vancouver- University method. The sample was a convenience sample where the requirements for participation were; to speak Icelandic, to have started out in normal labour then had to undergo an emergency caesarean section, at least six months since the birth of the child and no more than five years since the birth. Participation was advertised on the Facebook group Mæðratips and one interview were conducted with each of the participants, where an interview framework was used, in total of 12 interviews. Results: The women described mixed emotions like disappointment, distress and fear for their life and their child, also at the same time a certain relief. The overarching theme of the study was a difficult experience: something that one does not necessarily expect to happen, that describes how the women experienced the trauma to have to undergo an emergency caesarean section and that it took them a long time to recover from that experience. The main themes were seven: Having to have an emergency caesarean section, mental well-being, influencing factors, physical well-being, education and follow-up, partners and current well-being. Sub-themes were then analysed under the main themes. Conclusion: To start out in normal labour and then must undergo an emergency caesarean section is commonly a difficult and complex experience where the support of the midwife can have a profound effect on the women´s experience.
    Keywords: Emergency caesarean section, birth experience, mental health, experience, trauma, educational needs, follow up, midwifery, phenomenology, Vancouver-School.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin lokuð til 30.09.2022
Samþykkt: 
  • 13.6.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/41865


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
LokaeintakMaríaSunna yfirfarið Inga allt samþykkt-4.pdf1.79 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna