Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41913
Gangan yfir skólabrúna vísar til þáttaskila í námi barna, þegar þau flytjast úr leikskóla í grunnskóla. Þáttaskilin fela í sér miklar breytingar fyrir börn sem geta reynst þeim erfiðar að ganga í gegnum. Því skiptir miklu máli hvernig er staðið að flutningi þeirra á milli skólastiga svo að hann sé sem farsælastur. Ef illa er staðið að flutningnum getur það áhrif á börn til frambúðar.
Í gildandi lögum um leikskóla (nr. 90/2008) og grunnskóla (nr. 91/2008) er kveðið á um að menntun og velferð barna sé sameiginlegt verkefni heimila og skóla. Einnig er kveðið á um samfellu í námi barna í ýmsum stefnumótandi áætlunum sem móta grundvöll íslensks menntakerfis, þar með talið aðalnámskrám skólastiganna. Með samfellu er átt við að skólaganga barna myndi vissa heildstæðu, þannig að reynsla á fyrri skólastigum nýtist börnum á þeim næstu. Samkvæmt Reynslukenningu John Deweys er samfella í reynslu mikilvæg á mótum leikskóla og grunnskóla. Þannig byggi nám barna í grunnskóla á reynslu þeirra sem þau hafa öðlast á vettvangi fjölskyldu og leikskóla. Í þeim skilningi verður reynsla barna að hafa þá eiginleika að geta haft áhrif á reynslu sem á eftir kemur. Urie Bronfenbrenner setti reynslu barna í heildrænt samhengi félagslegra, sögulegra, menningarlegra og umhverfislegra þátta. Samkvæmt Vistfræðikenningu Bronfenbrenners taka allir í nánasta umhverfi barna beinan þátt í flutningi þeirra á milli skólastiga og því reynir á virkni og persónuleg samskipti til að fá reynslu úr tilteknu umhverfi.
Þessi ritgerð miðar að því að skoða sögulegan bakgrunn leikskóla og grunnskóla með áherslu á tengsl skólastiganna. Leitast verður við að varpa ljósi á mikilvægi skilvirkrar samfellu í námi á mótum skólastiganna og hvað felst í hlutverki þeirra sem koma að flutningum. Gengið verður út frá ofangreindum kenningum og þær settar í samhengi við tengsl skólastiganna. Einnig verða rannsóknir Jóhönnu Einarsdóttur reifaðar og vísað til annars málsmetandi fólks á þessu sviði.
The title Gangan yfir skólabrúna refers to the educational transition between preschool and primary school. This transition involves many changes for the children, which can be difficult for them. The proper organization is therefore necessary so that the transition between school stages can be beneficial. If executed poorly this can have a lasting detrimental effect on the children. According to current laws regarding preschool and elementary school the education and wellbeing of children is the joint responsibility of homes and schools (Lög um leikskóla nr. 90/2008; Lög um grunnskóla nr. 91/2008). In addition, the continuity of children's education is referred to in the various strategic plans that form the basis of the Icelandic educational system, including the national curricula of the school stages. Continuity refers to education forming a whole where students' experience on one stage will be beneficial on the next. According to John Dewey's Theory of Experience, continuity of education is important at the junction between preschool and primary school. Primary school education should be based on students' experience at home and in preschool. In this sense the experience gathered in one stage must also influence the following stage and the experience it offers. Urie Bronfenbrenner placed students' experiences in a holistic context based on social, historical, cultural and environmental factors. Bronfenbrenner's Ecological Systems Theory holds that every person surrounding a child is a participant in the transition between school stages and therefore the interpersonal communication and the quality of this communication is paramount in the resulting quality of transition between school stages. This paper aims to review the historical background of preschool and primary school with an emphasis on the links between school stages. An emphasis is also placed on illuminating the importance of an efficient transition between school stages and what part every participant in it plays. The previously mentioned theories will form the basis of the inquiry and their relationship to links between school stages. Furthermore, the research of Jóhanna Einarsdóttir will be assessed in the context and of other persons esteemed in the field.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Gangan yfir skólabrúna 2.pdf | 603,09 kB | Opinn | Skoða/Opna |